Íslendingar lögðust á eitt og kusu Magna í Rockstar-Supernova og Unni Birnu í fyrra í Miss World!!!
Nú er komið að Ásdísi Svövu sem keppir í Miss World í Póllandi þann 30.september n.k. Norður-Evrópu hópurinn verður kynntur í kvöld kl. 19:30 á Skjá-1 og símakosningin fer fram. Einnig er búið að opna fyrir netkosningu á www.missworld.com Atkvæðin geta komið henni í undanúrslit en tvær stúlkur úr hverjum hópi komast þar inn, önnur valin af dómnefndinni og hin sú sem er efst í síma- og netkosningunni! Hægt er að senda SMS næstu daga í 1910, og skilabooðin eru MW210.
Nú er því bara um að gera að KJÓSA, KJÓSA og KJÓSA Ásdísi okkar og sýna hversu megnug þjóð við erum!!!
Hér fyrir neðan eru svo nokkrar myndir úr ævintýralegu ferðalagi Ásdísar um Pólland, fleiri myndir er að finna á www.xy.is/asdissvava
|