Herra Norðurland 2006!

Þorbergur Ingvi Sævarsson, 19 ára var valinn Herra Norðurland 2006 í gærkvöldi í Sjallanum á Akureyri.


Troðfullt hús var þegar úrslitin voru tilkynnt á miðnætti, en í 2. sæti varð Helgi Héðinsson 21 árs frá Húsavík og í 3. sæti Jón Þormar Pálsson, 26 ára frá Raufarhöfn.  Þeir munu allir þrír taka þátta í Herra Ísland sem fram fer á Broadway 23. nóvember n.k. og sýnd verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Skjá-1.  Þorbergur er frá Neskaupsstað en búsettur á Akureyri.


Meðfylgjandi myndir:  www.heida.is