Keppendur í Herra Ísland eru 21 í ár og eiga flestir landshlutar fulltrúa í hópnum. Keppnin verður haldin á Broadway 23. nóvember n.k og sýnd í beinni sjónvarpsútsendingu á Skjá-1 sem hefst kl. 22:00. Listrænn stjórnandi er Ástrós Gunnarsdóttir.
Strákarnir munu taka á móti matargestum í anddyri Broadway með Captain Morgan fordrykk og síðan verður snæddur 3ja rétta kvöldverður. Húsið opnar svo kl. 22:00 fyrir aðra en matargesti.
Matseðill kvöldsins:
Sjávarréttasúpa með grillaðri risahörpuskel
Nauta-og grísamedalía bordalaise, með ristuðum sveppum ogkartöfluþrennu
Krapís á súkkulaðiplötum með marineruðum jarðaberjum
Keppendur munu koma fram 4 sinnum; í opnunaratriði og í tískusýningum frá Next og Oroblu. Valið verður í 5 manna undanúrslit og svo 1.,2. og 3. sætið. Auk þess verða valdir Next-herrann, Zirh-herrann og strákarnir velja sjálfir þann vinsælasta í hópnum. Jón Gunnlaugur Viggósson, Herra Ísland 2005 mun afhenda titilinn eftirsótta um kl. 23:30.
Strákarnir hafa undanfarnar vikur æft í World Class, Laugum og aðrir sem koma að útliti strákanna eru:
Toni&Guy sem sjá um hárið með og L´oreal professional hársnyrtivörum
Gasa hefur umsjón með förðun með CEE og Zirh förðunarvörum
Snyrtistofan Fegurð bauð strákunum í brúnkuspsrautun
|