 N.k. fimmtudag 23. nóvember verður Herra Ísland sprotinn afhentur í 11. sinn, þegar krýndur verður Herra Ísland 2006. Þessi farandgripur keppninnar var smíðaður af Jóni Snorra Sigurðssyni gullsmið árið 1996, þegar Fegurðarsamkeppni Íslands hélt fyrstu Herra Ísland keppnina, sem hefur verið árviss viðburður síðan. Það er Jón Gunnlaugur Viggósson, Herra Ísland 2005 sem afhendir nýjum sigurvegara sprotann.
Það hefur verið í nógu að snúast hjá strákunum undanfarið og tók Lárus ljósmyndari þessar myndir í vikunni, á Broadway og í Keiluhöllinni.
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á keppnina, en miðasala er á Broadway, s. 533-1100.
|