Linda keppir á föstudaginn

Linda Benediktsdóttir keppir í Miss Model Of The World í Shenzhen, föstudaginn 8. desember.


Áður en Linda hélt utan, var hún dressuð upp í NEXT, en Linda var valin NEXT-stúlkan og ljósmyndafyrirsætan í Fegurðarsamkeppni Íslands í vor.


Stelpurnar í Kiss lánuðu henni svo skart að vild,  til að hafa með til Kína.  Lárus ljósmyndari keppninnar fylgdi Lindu eftir í Kringlunni þegar hún heimsótti þessa aðila.