 Birna Bolladóttir 18 ára Akureyrarmær var valin Ungfrú Norðurland 2007 í glæsilegu hófi í Sjallanum Akureyri í gærkvöldi.
Í 2. sæti varð Arna Dögg Gunnlaugsdóttir 19 ára einnig frá Akureyri og Elsa Guðrún Jónsdóttir 21 árs frá Ólafsfirði hafnaði í 3. sæti keppninnar. Alls kepptu 13 stúlkur um titilinn.
Meðfylgjandi myndir tók Heiða www.heida.is
|