Erla Vinsy Daðadóttir ungfrú Suðurland 2008

Erla Vinsý Daðadóttir, var valin ungfrú Suðurland á Hótel Selfossi föstudagskvöldið 28.mars.

Erla Vinsy varð einnig hlutskörpust í netkosningunni sem fór fram á fréttavefnum sudurland.net.
Í 2.sæti var Lilja Dröfn Kristinsdóttir frá Vestmannaeyjum og í 3.sæti var Anna Ester Óttarsdóttir frá Vestmannaeyjum.
Ljósmyndafyrirsætan var valin Elísabet Ósk Guðlaugsdóttir. Stúlkurnar völdu sjálfar vinsælustu stúlkuna og var það Lilja Dröfn Kristinsdóttir sem hreppti þann titil.


Myndasafn