Alexandra Helga valin Ungfrú Ísland 2008

Alexandra Helga Ívarsdóttir, 18 ára úr Reykjavík, var núna laust eftir miðnætti valin Ungfrú Ísland 2008. Ingibjörg Ragnheiður Egilsdóttir, 23 ára Hornfirðingur, varð í öðru sæti og Sonja Björk Jónsdóttir, 18 ára Dalvíkingur varð í þriðja sæti.

Alexandra Helga, mun taka þátt í keppninni Miss World, sem fer fram í Úkraínu í október.



Ingibjörg Ragnheiður, var einnig valin Valensia og Sothys stúlkan.

Hanna Lind Garðarsdóttir var valin ljósmyndafyrirsæta Íslands og vinsælasta stúlkan var Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir. Símastúlkan, sem valin var í símakosningu áhorfenda Skjás eins, var Iðunn Jónasardóttir.


Myndasafn