Ungfrú Ísland 2018

21078766_1452602178128301_7785941627954243369_n

Ungfrú Ísland 2018 verður með öðru sniði en síðustu ár. Frá því nýir eigendur tóku við Ungfrú Ísland árið 2013 hefur rík áhersla verið lögð á að þátttakendur nýti krafta sína og stöðu til að láta gott af sér leiða. Í gegnum Ungfrú Ísland ferlin síðustu ár hafa verið haldnir ýmsir viðburðir og annað slíkt til að safna fyrir góðu málefni. Á síðasta ári, 2017, safnaði hópurinn fyrir góðgerðarsamtökunum Big B sem eru rekin af sjálfboðaliðasamtökunum Norður-Suður í Suður Afríku.

Aðstandendum Ungfrú Ísland langar að leggja meiri áherslu á góðgerðarmál og að fylgja eftir þeim söfnunum og starfi sem hefur verið unnið af þátttakendum síðustu ár og mun því ekki vera eiginlegt lokakvöld Ungfrú Ísland eða ferli einsog venjan er heldur mun starf Ungfrú Ísland 2018 snúast alfarið um góðgerðarmál. Hugmyndin vaknaði út frá starfi Miss World, en margir vita kannski ekki að Miss World eru stærstu góðgerðarsamtök í heiminum. Stjórn og þátttakendur Ungfrú Ísland síðustu ára ætla að sameina krafta sína og nota sumarið í að halda ýmsa viðburði og safnanir og mun síðan hópur á vegum Ungfrú Ísland halda út til Suður Afríku í haust í hjálparstarf. Allt sem safnast í sumar mun renna óskipt til sjálfboðaliðasamtakanna.

Norður-Suður (www.nordursudur.org) sjálf­boðaliðasam­tök­in eru rek­in af Lilju Marteins­dótt­ur og eig­in­manni henn­ar, en þau eru bú­sett eru ásamt þrem­ur börn­um sín­um rétt fyr­ir utan Höfðaborg. Sjálfboðaliðarn­ir búa á heim­ili þeirra á meðan þeir sinna ýmis kon­ar sjálf­boðaliðastarfi í fátækra­hverf­um borg­ar­inn­ar. Nú er unnið er að því að stofna miðstöð á vegum Ungfrú Ísland í einu hverfinu þar sem hópurinn mun m.a. koma til með að vinna í sjálfsstyrkingu ungra stúlkna í hverfunum.

www.nordursudur.org

Af þessu leiðir að ekki var opnað fyrir umsóknir í Ungfrú Ísland í ár en við þökkum öllum þeim sem hafa sent inn umsókn og sýnt áhuga og hlökkum til að taka á móti þeim að ári. Við erum ótrúlega spennt fyrir hjálparstarfinu og komum til með að deila ferlinu með þjóðinni á miðlum Ungfrú Ísland (Miss World Iceland). Nánari upplýsingar um söfnunina og verkefnin á vegum Ungfrú Ísland í Suður Afríku koma í ljós á næstu vikum. Þeir sem vilja vita meira um starfið eða leggja okkur lið er bent á að hafa samband við ungfruisland@ungfruisland.is 

xx

Fyrir hönd Ungfrú Ísland,

Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdarstjóri. 

Continue Reading

Íþróttakeppni Ungfrú Ísland 2017

Miss Sport Iceland 2017

xx

Íþróttakeppni Ungfrú Ísland 2017 fór fram í World Class Laugum í sumar undir handleiðslu Olgu Helenu Ólafsdóttur þjálfara. Stúlkurnar höfðu val um að taka þátt og var keppnin þrjár lotur. Eftir stóðu top 5 og voru úrslitin kynnt á lokakvöldi Ungfrú Ísland þann 26. ágúst s.l.

1c0a1482

Hrafnhildur Arnardóttir er Miss Sport Iceland 2017.

Continue Reading

Miðasala er hafin

ui-2017

Stórglæsilegt lokakvöld Ungfrú Ísland 2017 fer fram laugardagskvöldið 26. ágúst í Silfurbergi, Hörpu, þar sem 24 stúlkur stíga á svið og í ljós kemur hverjar verða krýndar. Fylgst verður með hópnum og leiðin að titlinum rakin.

Viðburðurinn hefst kl. 19:00 þar sem titilhafar frá árinu 2016 taka á móti gestum og DJ Dóra Júlía heldur uppi stemningunni. Tískusýningar verða frá Nike og Another Creation og tónlistarmennirnir Herra Hnetusmjör, Chase og Jói Pé koma fram. Viðburður þar sem íslensk tónlist, hönnun og fegurð er í hávegum höfð og enginn ætti að missa af.

Miðaverð: 4.490 kr.

Snyrtilegur klæðnaður

https://www.harpa.is/dagskra/vidburdur/ungfru-island-2017/

Continue Reading

Opið fyrir umsóknir út mars

ui-2017

Arna Ýr Jónsdóttir og Egill Trausti Ómarsson.

Arna Ýr Jóns­dótt­ir og Eg­ill Trausti Ómars­son.

Skrán­ing í Ung­frú Ísland er í full­um gangi og stend­ur út mars. Birgitta Líf Björns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri keppn­inn­ar, seg­ir að keppn­in sé fyr­ir all­ar þær stelp­ur sem langi til að upp­lifa ný tæki­færi.

„Við leit­um að stúlk­um á aldr­in­um 18-25 ára frá öll­um horn­um lands­ins sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu skemmti­lega æv­in­týri með okk­ur. Leit­ast er eft­ir að velja fjöl­breytt­an hóp, bæði eft­ir aldri, áhuga­sviði, og framtíðar­sýn,“ seg­ir Birgitta Líf.

Birgitta Líf Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Ungfrú Ísland.
Birgitta Líf Björns­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Ung­frú Ísland.

Spurð af hverju stúlk­ur ættu að taka þátt í Ung­frú Íslandi seg­ir Birgitta keppn­ina vera ótrú­lega skemmti­legt ferli. „Þetta er vett­vang­ur fyr­ir ung­ar stelp­ur til að upp­lifa nýja hluti, fá aukið sjálfs­traust, eign­ast góðar vin­kon­ur og opn­ar á ný tæki­færi.“

Birgitta seg­ir að tölu­verðar breyt­ing­ar hafi orðið á keppn­inni eft­ir að nýir eig­end­ur tóku við henni árið 2014. „Keppn­in í dag snýst um að velja verðugan full­trúa fyr­ir Íslands hönd í Miss World. Mik­il áhersla er lögð á að stúlk­urn­ar þrosk­ist og dafni meðan á ferl­inu stend­ur, auki sjálfs­traust, taki þátt í góðgerðar­störf­um, fái fjöl­miðla­fræðslu, fari á Dale Car­negie-nám­skeið, læri að koma fram á sviði og í tísku­sýn­ingu, fái reynslu í fyr­ir­sætu­störf­um, eign­ist góðar vin­kon­ur og taki þátt í ýms­um fleiri skemmti­leg­um og fræðandi viðburðum yfir sum­arið.“

Donna Cruz, Elfa Rut Gísladóttir, Anna Lára Orlowska, Hulda Margrét Sigurðardóttir og Aníta Ösp Ingólfsdóttir – mbl.is/Freyja Gylfa

Skrán­ing í keppn­ina hófst í mars og stend­ur hún út mánuðinn. Stefnt er að því að loka­hóp­ur­inn verði til­bú­inn í maí en þá fer af stað langt ferli. „Ferlið hefst í júní og stend­ur það yfir í þrjá mánuði, eða fram að loka­kvöld­inu sem verður haldið með pompi og prakt í Hörp­unni 26. ág­úst.“

Skrán­ing­ar fara fram í gegn­um ung­fruis­land@ung­fruis­land.is og er hægt að nálg­ast all­ar upp­lýs­ing­ar hér.

mbl.is/Freyja Gylfa

Fréttin birtist fyrst á www.mbl.is 
Continue Reading

Anna Lára: Þakklát Kvennaathvarfinu

14439037_1283378515028682_893676411_o
Viðtalið birtist fyrst á www.visir.is

KRISTJANA BJÖRG GUÐBRANDSDÓTTIR SKRIFAR:

Anna Lára tekur á móti blaðamanni á heimili sínu í blokk í Fellahverfi í Breiðholti. Það er lykt af pönnukökum í loftinu og grábröndóttur köttur þvælist um fætur hennar. Íbúðin er björt og það er létt yfir henni. „Þær brunnu reyndar við, finnur þú enga brunalykt?“ spyr Anna Lára og segist hafa haft hugann við viðtalið. Hún hefur ekki rætt ítarlega um eigið líf þrátt fyrir að hafa verið í sviðsljósinu. Það skiptir hana máli að koma hreint fram. „Ég vil enga glansmynd,“ útskýrir hún.

Í þessari íbúð hefur Anna Lára búið með móður sinni og systrum svo lengi sem hún man eftir sér. Hún man ekki eftir því þegar þær mæðgur flúðu heimilisofbeldi, frá Ísafirði og í skjól í Kvennaathvarfið í Reykjavík. Tímanum þar. Eða eftir því þegar þær fengu aðstoð við að koma sér fyrir á nýjum stað. Í nákvæmlega þessari íbúð. Hún var enda aðeins ársgömul.

Anna Lára vakti athygli á aðstæðum sínum í æsku áður en hún hélt utan til þátttöku í keppninni Miss World, sem fór fram í Washington í Bandaríkjunum í desember síðastliðnum og áður en hún fór blés hún til söfnunar til styrktar Kvennaathvarfinu.

Stoltar af mömmu
Anna Lára á fjórar eldri systur. Tvær eru dætur föður hennar, Svava og Bryndís, og búa í Danmörku og tvær eru dætur móður hennar, Monika og Sandra, og búa á Íslandi. „Það er gott samband á milli mín og systra minna. Þrátt fyrir erfiðleikana þá erum við fjölskylda. Eldri systur mínar muna vel eftir dvölinni í Kvennaathvarfinu og hafa sagt mér sögur. Við erum stoltar af styrk mömmu. Mamma hefur alltaf lagt áherslu á það að við séum sterkar og að styrkurinn komi að innan. Við erum allar mótaðar af þessu. Á góðan hátt tel ég,“ segir hún frá.

„Ég fæddist á Ísafirði. Mamma er pólsk og pabbi er íslenskur. Mamma kom til Íslands þegar hún var rétt rúmlega tvítug. Það er stórt skref fyrir mig að ræða um þessi mál en á sama tíma hef ég þörf fyrir að vera skýr og heiðarleg. Mömmu finnst líka erfitt að opna á þetta. En vonandi hjálpar það einhverjum að ég geti rætt þetta. Ég vona að fólk taki þessu vel.

Ég er fyrst núna farin að sætta mig við það hver pabbi er. Að hann sé alkóhólisti. Mamma hlífði mér í uppvextinum fyrir því sem gekk á á heimilinu áður en við fórum í Kvennaathvarfið,“ segir Anna Lára, sem segist samt hafa fundið á sér að ekki væri allt með felldu í sálarlífi föður síns. „Mamma vildi aldrei banna mér að umgangast föður minn og hann hefur aldrei gert mér neitt. En ég fann fyrir óróa nálægt honum, tilfinningu sem mér finnst erfitt að koma í orð. Ég var því ekki mikið með honum, líka af því hann býr á Ísafirði,“ segir Anna Lára.

Þakklát Kvennaathvarfinu
„Þegar mamma flúði þá hafði hún engan og ekkert hér á Íslandi. Það var enginn sem hjálpaði henni. Ekki einu sinni fjölskylda pabba. Kvennaathvarfið var því eina ráðið og það var heillaskref hjá mömmu að fara þangað. Þar fékk hún mjög mikla aðstoð. Þess vegna er ég þeim ævinlega þakklát og vil gefa til baka af mér til þeirra og samfélagsins,“ segir Anna Lára. Hún segir frá því að hún hafi fengið fjölmörg skilaboð frá konum sem hafa fengið aðstoð í Kvennaathvarfinu.

„Ég fæ helst skilaboð frá konum sem eru þakklátar fyrir það að ég sé opinská með þetta. Þær hafa viljað deila því með mér að þær hafi dvalið þarna, en kannski ekki greint nákvæmlega frá reynslu sinni, enda er það mjög erfitt. Mér þykir vænt um þetta.“
Móðir Önnu Láru segir móður sína hafa haldið vel utan um fjölskylduna og líka gefið af sér til samfélagsins. Hún er hennar helsta fyrirmynd.

„Mamma er kölluð frú Orlowska og nýtur mikillar virðingar á meðal Íslendinga af pólskum uppruna. Hún vann lengi á Vinnumálastofnun og aðstoðaði oft Pólverja sem voru í vandræðum eða að flytjast hingað. Hér heima var stöðugur gestagangur fólks sem leitaði ráða hjá henni.

Líf okkar hefur breyst hægt og rólega,“ útskýrir Anna Lára. „Íbúðin hefur ekki alltaf verið svona,“ segir hún og horfir í kringum sig. „Það er mikið búið að breytast hér. Það komu tímabil þar sem við fundum fyrir skorti. Stundum var ekki til matur í ísskápnum eða peningar fyrir fötum eða tómstundum, en það var nú samt alltaf hægt að redda því. Það er mömmu að þakka. Hún hefur alltaf verið mjög skipulögð, það var hennar mótleikur gegn skortinum. Hún fór til dæmis alltaf á útsölurnar í janúar og skipulagði öll frí til Póllands með árs fyrirvara. Lagði fyrir í langan tíma áður,“ segir Anna Lára og segir ferðirnar til Póllands hafa verið mikilvægar. „Við fórum oft til Póllands á sumrin til að hitta fjölskylduna og þess vegna tala ég ágæta pólsku í dag. Mamma hefur viljað fara oftar seinni árin, hún þolir illa kuldann. það er heitara í Póllandi. Við eigum hús í Póllandi í dag.“

Ísland er að breytast
Anna Lára er sú fyrsta af erlendum uppruna sem er krýnd ungfrú Ísland og hún er stolt af því. „Fólki finnst það gaman. Að það sé ekki bara þessari dæmigerðu alíslensku fegurð sem er haldið á lofti. Að stúlka af erlendum uppruna sé landkynning. Við erum öll falleg og við erum svo mörg hér á landi af öðrum uppruna sem erum líka Íslendingar. Ég var að minnsta kosti stolt af því að fá að vera fulltrúi Íslands og vera af erlendum uppruna. Mér þykir líka vænt um ættarnafnið mitt og vil halda því á lofti,“ segir Anna Lára sem segir móður sína hafa spurt forráðamenn keppninnar á Íslandi um sigurinn.

„Af hverju dóttir mín? spurði mamma og þá sögðu þau henni að það væri minn innri styrkur. Þá varð hún svo stolt því hún veit alveg hvaðan hann kemur,“ segir Anna Lára og brosir.

 

Þakklát Kvennaathvarfinu

Í Fellahverfi búa fjölmargar þjóðir og fjölmenningin orðin hversdagsleg. „Ísland er að breytast. Ég hef starfað í félagsmiðstöðinni Hund­raðogellefu síðastliðin þrjú ár. Ég sótti þessa félagsmiðstöð sjálf sem unglingur. Það er töluvert breytt. Núna eru eiginlega engir alíslenskir krakkar hér. Fjölmenningin er mjög sýnileg.“

Fellin fjölskylduhverfi
Hún segir Fellahverfið fyrst og fremst fjölskylduhverfi. Það eigi ekki skilið það orðspor sem það hefur fengið á sig í gegnum tíðina. Þar sé ekki meira um afbrot og ofbeldi en í öðrum hverfum borgarinnar þótt margir íbúa séu af öðrum uppruna og hafi ekki jafnmikið á milli handanna og aðrir.

„Ég upplifi þetta hverfi sem öruggt hverfi. Hér er mikið af fjölskyldufólki og hér búa afar mörg börn. Því er alltaf slegið upp í fréttum þegar það kemur eitthvað fyrir í Breiðholtinu en á meðan er lítið fjallað um það góða og uppbyggilega sem gerist hér,“ bendir hún á. „Hér í grenndinni er öll þjónusta til staðar, skólar, verslanir og stofnanir. Þetta er gott hverfi og það mætti oftar veita því góða athygli.

Ég hef ekki alltaf verið stolt af bakgrunninum. Nökkvi kærastinn minn breytti miklu um það hvernig ég horfi á umhverfið. Hann hefur alltaf staðið mjög þétt við bakið á mér, byggt mig upp. Það skiptir miklu að finna það að einhver hefur svona sterka trú á þér og hann fékk mig til að skilja að það að alast upp hér er hluti af mér sem ég á að vera stolt af.“

Vinnur í félagsmiðstöð
Anna Lára starfar sem frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðinni. „Ég er til staðar fyrir unglingana. Mér finnst starfið gefandi og skemmtilegt og finnst alltaf gaman að mæta í vinnuna. Hlakka alltaf til. Ég hef verið með hópastarf fyrir stelpur á aldrinum 13-15 ára og langar að halda því áfram. Þróa það og bjóða upp á námskeið fyrir unga krakka. Ég er mikið að hugsa um það hvað ég vildi sjálf þegar ég var yngri. Þá leitaði ég helst að einhverju sem ég taldi að myndi styrkja mig. Ég held að ég þurfi liðsinni einhvers með þekkingu á sálfræði eða álíka, til að halda áfram að þróa hugmyndina. Mig langar til að ná til krakka sem mæta ekki í félagsmiðstöðvar og krakka utan Breiðholts líka. Ég er með alls konar hugmyndir sem mig langar að fá tækifæri til að útfæra.“

Anna Lára greindi frá því þegar hún tók þátt í Ungfrú Ísland að hún hefði fyrst veigrað sér við þátttöku vegna gagnrýni á keppnina. „Ég ákvað að láta þessa gagnrýni ekki hafa áhrif á mig. Ég ákvað að taka þátt í keppninni til að stíga út fyrir rammann. Mig langaði að ná meira til fólks, afla mér frekari tengsla. Stækka minn heim. Það var tilgangurinn, ég hélt að ég ætti kannski möguleika á að vinna titilinn vinsælasta stúlkan. Sigurinn kom mér mjög á óvart.

Eftir keppnina þá er ég að gera eitthvað sem ég gat aldrei ímyndað mér að ég gæti gert. Það er auðveldara fyrir mig að gera hlutina en áður,“ segir Anna Lára.

Hún fór til Washington að keppa í Miss World í desember. Fáir vita hversu mikið prógramm bíður keppenda. „Áður en ég fór út þá talaði ég við Örnu Ýr, fyrrverandi fegurðardrottningu Íslands, og hún sagði mér frá sinni upplifun. Keppnin er hins vegar breytt frá því árinu áður. Takturinn var allur hraðari í þetta sinn.

Mikil vinna í Miss World
Þegar ég kom út þá fékk ég sjokk. Þetta var svo skrýtið og yfirþyrmandi. Þarna voru 120 stórglæsilegar og eldklárar stelpur og fyrstu dagana var ég óörugg. Ég komst fljótlega að því að flestar þeirra voru í sömu sporum og ég og að hugsa það sama. Það er alltaf ákveðið óöryggi sem fylgir því að takast á við ný verkefni með ókunnugu fólki. Þetta er fyrst og fremst miklu meira og viðameira verkefni en ég held að fólk geri sér grein fyrir,“ segir Anna Lára. „Þetta er svo miklu meira en bara keppni í fegurð. Þetta er verkefni sem stendur yfir í nokkrar vikur og mestur tími okkar fer í að byggja upp verkefni og markmið sem hafa samfélagsleg gildi og koma heiminum til góða. Sumar unnu að því að byggja skóla, ég vann í verkefni mínu tengdu Kvennaathvarfinu. Undirbúningurinn var strangur en lærdómsríkur. Og keppniskvöldið var skemmtilegt. Ég var ekki stressuð en stolt af verkum mínum og frammistöðu. En sýningin, í mínum huga er hún aukaatriði.“

Án tilstands
Hún leyfði fólki að fylgjast með sér á samfélagsmiðlum á tímabilinu og gætti þess að sýna allar hliðar lífsins. „Ég set ekki upp glansmynd. Ég vildi sýna allt. Þegar ég var þreytt, pirruð eða sár eða nývöknuð. Mér finnst mikilvægt að fólk sé sátt við sig eins og það er. Án farða, án fegrunar og tilstands. Ég vildi sýna fólki það sjálf. Að svona er ég bara þótt ég eins og allir aðrir geti sett á mig farða og tekið þátt í sýningunni mér og öðrum til gamans.“

Anna Lára hefur fengið mörg skilaboð frá ungum konum vegna þessa. „Fólk vill þakka mér fyrir að vera heiðarleg og að búa ekki til einhverja ímynd. Þakkar mér fyrir að vera góð fyrirmynd. Þá finn ég til meiri ábyrgðar. Ég vil sýna fólki að útlitið skiptir ekki máli. Það eru hugsanir okkar og hegðun sem skiptir máli. Hver við erum og hvað við gerum. Mamma kenndi mér það. Og það að elska fólk og sýna því virðingu er það allra mikilvægasta. Það er algjör grundvöllur,“ bætir hún við.

Hún ætlar bráðlega að fara í heimsókn í Kvennaathvarfið. „Ég ætla að halda aðeins áfram með verkefnið og hlusta á þær, hvað það er sem gagnast. Mig langar alla vega virkilega til þess að láta gott af mér leiða.“

 

Continue Reading

Arna Ýr: Allt um Ungfrú Ísland

12194195_10207773127190096_1347172965_o

Þessi færsla birtist fyrst á www.arnayrjons.com


IMG_4836

Ungfrú Ísland hefur verið haldin nánast árlega frá 1950! Ég held að engin önnur keppni hérlendis hefur flakkað jafn mikið á milli að vera “frábær” og “slæm” í augum hjá fólki. Ungfrú Ísland er gjörbreytt keppni í dag og persónulega finnst mér hún einungis hjálpa ungum konum til þess að öðlast sjálfstraust, koma fram og tala, kynnast æðislegum stelpum og að sjálfsögðu, njóta þess að vera ung og hafa gaman! Margir dæma þessa keppni og líta á stúlkurnar sem “sýningargripi” og fl. Það er ekkert nema fáfræði. Mér finnst að áður en fólk fer að dæma ætti það að kynna sér hvernig þessi keppni er, því hún er FRÁBÆR! Hér er sagan mín.

Árið 2013 var ég skráð í Ungfrú Ísland. Ég var nýorðin 18 ára, feimin, tók hluti inná mig sem aðrir sögðu og átti erfitt með að koma mínum skoðunum áleiðis. Ég var á fullu í frjálsum írþróttum og var dauðhrædd við að segja vinum og vandamönnum að ÉG feimna og lokaða Arna ætlaði uppá svið í bikiníi! Ég fann fljótt að þetta var ekki fyrir mig og hætti í miðjum undirbúningi. Ég fylgdist þó með flottu stelpunum allt sumarið og beið eftir lokakvöldinu til að vita hver hefði sigrað. nokkrum vikum síðar fór ég að sjá eftir því að hafa ekki tekið þátt. Það myndaðist frábær vinkonuhópur sem ég vildi vera partur af. Ég ákvað að taka þátt þegar ég yrði eldri.

Keppnin var ekki haldin árið 2014 vegna eigendaskipta en ekki vissi ég af því og grunaði að keppnin væri bara alveg hætt. Ég var frekar svekkt því ég hafði áhuga á að taka þátt þegar ég yrði eldri. En viti menn, ári síðar opnar fyrir umsóknir! Ég vildi mikið taka þátt en þessi óvissa var enn pikkföst í hausnum á mér. Hugrún vinkona mín var spurð um að taka þátt og við ákváðum saman að ég myndi sækja um og hún myndi segja já við boðinu. Þvílík gleði og spenningur hjá okkur vinkonum! Við vissum ekki hvað við vorum að fara úti því keppnin var gjörbreytt. Það voru haldin viðtöl og svo var valinn ca 24-26 stúlkna hópur. Fyrsti hittingurinn var mjög fyndinn…. við allar mættum rosa stressaðar býst ég við og undarlegt andrúmsloft, allar vildu kíkja á hvora aðra en það var hálf vandræðalegt. En um leið og hittingurinn var að klárast vorum við farnar að spjalla og kynnast! Fleiri hittingar liðu og við vorum orðar frábær, stór vinkonuhópur. Við fórum saman í spa í World Class, spjölluðum endalaust, mættum á gönguæfingar saman, fórum í fótboltagolf, lærðum hárgreiðslur hjá Bpro, mættum í förðun og myndatöku, fengum allskonar vörur til þess að nota, fórum á Dale Carnegie, hittumst í brunch, borðuðum saman skemmtum okkur niðrí bæ, hjálpuðumst að við hitt og þetta, unnum í góðgerðarstarfi, fengum þjálfun hjá Aðalheiði ef við vildum, hlupum saman í Reykjavíkurmaraþoninu og að sjálfsögðu, nutum hverrar stundar sem leið því alltíeinu yrði þetta sumar búið og keppnin næsta dag!

Þetta sumar var yndislegt. Undirbúningurinn var svo skemmtilegur. Að velja sér kjól, ákveða hárgreiðslu og neglur og það besta við undirbúninginn er að við hjálpuðumst allar að. Kvöldi fyrir keppni var ég niðrí World Class að bera á mig brúnkukrem. Ég var sko búin að æfa mig oft um sumarið og orðin ansi flink. Að sjálfsögðu þurfti eitthvað að fara úrskeiðis og varð ég flekkóttari en zebrahestur! Ég í stresskasti að reyna að blanda brúnkunni sem yrði tíu sinnum flekkóttari daginn eftir rakst ég á Lobunu vinkonu mína sem var líka að taka þátt. Hún var fljót að grípa handklæði og nudda bakið mitt með því þangað til flekkirnir fóru (fyrirgefðu Dísa og Bjössi með handklæðið sem var alveg brúnt 🙁 ). Þegar ég vaknaði daginn eftir var brúnkan mín bara fullkomin og engir flekkir! Þetta segir allt um kærleikann sem myndast á milli okkar í keppninni. Við vorum ekkert að horfa á hvora aðra sem keppnnauta, heldur vinkonur sem verða alltaf til staðar.

Þegar aðaldagurinn rann upp var spenningurinn í hámarki! Ekki vegna krýningunni heldur til þess að sýna fólki hvað við höfðum verið að vinna að í allt sumar og fá að eiga þessa frábæru kvöldstund saman. Hugrún kom til mín og við gerðum okkur klárar hjá mér, pökkuðum niður dótinu okkar, fórum í sturtu, settum sá meiri brúnkukrem á hvora aðra, fengum okkur að borða og mættum niðrí Hörpu. Við fengum risa herbergi eða sal liggur við fyrir dótið okkar og allar fengum við sér borð. Á mínu borði voru skartgripirnir mínir. Skórnir fyrir bikiní atriðið og síðkjólinn, pakki frá foreldrum mínum sem ég átti opna eftir keppni, við fengum að borða í Hörpunni og svo voru generalprufur. Við fórum upp í förðun hjá frábærum förðunarfræðingum frá Reykjavik Makeup School og svo var Bpro með fullt af krullujárnum fyrir okkur niðri, spegla með ljósum og bara ALLT sem mögulega gat verið fyrir okkur.

Ég hef aldrei í lífi mínu upplifað jafn mikil fiðrildi í magann og þegar ég heyrði “GOTT KVÖLD” eða “útsendingin er hafin stelpur” eða þegar lagið Cheerleder lagið fór í gang sem var lagið við fyrstu innkomuna í bikiníi. Ég var síðust í röðinni og sá stelpurnar koma af sviðinu með bros út á eyru hvað þetta var skemmtilegt. Þetta kvöld var yndislegt. Ég er alveg viss um að okkur öllum fannst ekkert smá gaman að koma fram og fá að upplifa þetta saman. Eftir að ég var krýnd Ungfrú Ísland stökk Hugrún á mig og knúsaði mig í döðlur. Það var yndislegt að finna hvað stelpurnar samglöddust mér. Eftir keppnina hittumst við svo öll á Austur og fjölskyldur velkomnar, borðuðum pizzu saman og svo var bara stuð alla nóttina! (Ég heimapúkinn var nú samt farin heim fyrir miðnætti).

Að taka þátt í Ungfrú Ísland er einstök upplifun. Hvort sem maður vinnur eða ekki þá var þetta kvöld það skemmtilegasta sem við margar hverjar höfðum upplifað! Ég lærði svo bilaðslega margt á þessu. Í dag er ég sterk ung kona, sjálfstraustið mitt er mun meira, ég framvkæmi í stað þess að láta hlutina bíða og hverfa, ég þori að grípa tækifæri, ég er ÉG. Ég er ekki að fela það hver ég er og hvað ég vil. Ungfrú Ísland keppnin færði mér meira heldur en ég hefði nokkurntímann hugsað mér.

Ekki fylgja stígnum
Þangað sem hann liggur.
Farðu heldur leiðina
sem enginn stígur liggur um
og skildu eftir slóða.

P.s. Við fengum ALLAR að vera eins og við vildum. Aldrei var sett út á útlit okkar, líkamsþyngd eða neitt. Hver og ein fór uppá svið eins og hún vildi og leið best með. Eigendur Ungfrú Ísland eru til fyrirmyndar.

Hér eru skemmtilegar myndir frá undirbúningnum, lokakvöldinu og fl.

IMG_3623

IMG_3499

IMG_3727

IMG_3640

IMG_3641

IMG_3643

IMG_3645

IMG_3652

IMG_3661

IMG_3667

IMG_3736

IMG_4646

IMG_4681

Screen Shot 2016-03-30 at 3.50.01 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.49.29 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.49.18 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.48.42 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.48.31 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.48.05 PM

Screen Shot 2016-03-30 at 3.47.33 PM

IMG_4690

IMG_4800

IMG_4700

IMG_4751

IMG_4833

Ungfrú Ísland 2015 keppnin í Hörpu

Ungfrú Ísland 2015 keppnin í Hörpu

Ungfrú Ísland 2015 keppnin í Hörpu

Ungfrú Ísland 2015 keppnin í Hörpu

IMG_4730

IMG_4834

IMG_4766

IMG_4733

IMG_4835

IMG_4779

IMG_4836

Screen Shot 2016-03-30 at 3.47.16 PM

Continue Reading

Anna Lára: Kynning

14439037_1283378515028682_893676411_o
14446382_1283378518362015_1782998164_o
Anna Lára Orlowska heiti ég og er að verða 22 ára þann 24.október. Ég er fædd og uppalin á Íslandi og hef búið í Breiðholti síðan ég man eftir mér. Ég bý þar enn ásamt kærastanum mínum honum Nökkva Fjalari og kisanum mínum honum Kisa. Ég ólst upp með mömmu minni, Elísubet, og tveim systrum mínum, þeim Moniku og Söndru.

Mamma mín er pólsk svo að ég er nokkuð heppin að hafa bæði íslenskt og pólskt blóð í mér. Á hverju ári höfum við mæðgurnar ferðast til Póllands og hitt fjölskylduna svo ég kann að tala pólsku nokkuð vel! Ég er að vinna í World Class og félagsmiðstöðinni hundradogellefu, en ég hef verið að vinna þar seinustu þrjú ár. Það er alltaf jafn gaman að mæta í vinnuna því það er alltaf eitthvað skemmtilegt að gerast. Ég hef verið með stelpuklúbba fyrir stelpur á aldrinum 13-15 ára og mig langar rosalega að byrja vera með klúbba eða styrkingar námskeið fyrir ungar stelpur. 

Það sem mér þykir skemmtilegt að gera er að dansa…ég elska zumba! Einnig finnst mér ótrúlega gaman að elda, föndra, spila frisbí golf, mini golf og öll golf haha! Ég elska að ferðast og skoða nýja staði og menningar frá öðrum löndum. Mér finnst ótrulega gaman að hreyfa mig en ég æfi mjög mikið í World Class og er með einkaþjálfara þar sem heitir Ásta.

Það eru mjög margir sem hafa spurt mig eftir að ég vann Ungfrú Ísland hvort líf mitt sé breytt eða hvort að mér líði öðruvísi og svarið við því er nei – ég er auðvitað ennþá sama manneskjan. Að vissu leiti hefur líf mitt breyst en það er þá allt bara til góðs. Ég hef fengið fullt af æðislegum tækifærum og skemmtilegum verkefnum. Stærsta verkefnið sem bíður mín er Miss World 2016. Ef að þú hefur áhuga að fylgjast með öllum mínum undirbúning þá mun ég vera dugleg að deila honum hér inni á blogginu svo endilega fylgist með, það er margt spennandi framundan! 
Ég hlakka til að deila ævintýrinu mínu með ykkur, xoxo Anna Lára.

14445440_1283369051696295_175545329_n
annalara_undirskr
Continue Reading